Hlaðvarpsþátturinn Aukasendingin snýr aftur fullur af orku eftir gott sumarfrí, tilbúinn í komandi átök í körfuboltanum. Í þessari fyrstu útgáfu eftir pásuna er rætt um helstu tíðindi og vendingar síðustu vikna, en af mörgu er að taka eftir mánuð í rólegheitum. Rýnt er djúpt í félagaskiptagluggann þar sem farið er yfir leikmannaveltuna og hvernig staða liðanna innbyrðis hefur breyst.
Meginþungi þáttarins fer í ítarlega og snemmbúna spá fyrir Bónusdeild karla, þar sem rætt er um sérhvert lið og líklegt gengi þeirra á komandi tímabili. Strákarnir kveikja rækilega í fólki fyrir veturinn 2026/2027 og kynna sömuleiðis áhugaverðan lista yfir það sem þeir hlakka mest til að sjá. Umræðurnar og spáin eru hlaðnar dörfum skoðunum sem munu ábyggilega lífga upp á spjallið á kaffistofum landsins á næstu dögum.
Í þættinum var einnig farið yfir ákveðin atriði sem spenna er fyrir á tímabilinu og er þeim stillt upp í listanum hér að neðan.

Fyrir hverju erum við spenntir 2026/2027?
- Jólaleikir. Derby slagir og stuð. Dreift yfir 3 daga. Mikið fjör.
- Hvaða íslensku strákar springa út.
- Hlakka til að sjá Sindra í efstu deild. Virðist vera nóg til. Hvernig er þekkingin?
- Hversu mikið dropp Stjarnan tekur og hversu mikið stökk Álftanes tekur.
- Tekst Grindavík hið ómögulega? Það er að segja að verja titilinn.
Honourable mention
Valur. Hvaða rugl verður á seyði?



