Íslenska U20 landslið kvenna vann stórglæsilegan 25 stiga sigur á Svíþjóð, 86–61, á Evrópumótinu í Litháen. Íslenska liðið hreinlega stjórnaði leiknum og leiddi nánast frá upphafsmínútunni.
Með þessum frábæra sigri tryggðu stelpurnar endanlega sæti sitt í A-deild EuroBasket. Liðið mun næst spila um 9. til 12. sæti mótsins.
Fréttaritari Körfunnar í Alytus spjallaði við Rebekku Steingrímsdóttur og Söru Logadóttur eftir leik í Litháen.



