HomeNeðri deildir1. deild karlaÁrni Kristján snýr aftur heim á Skagann

Árni Kristján snýr aftur heim á Skagann

Bakvörðurinn Árni Kristján Rögnvaldsson hefur gert samning við ÍA um að leika með liðinu á næsta tímabili. Árni, sem er fæddur árið 2008, snýr aftur heim á Skagann eftir að hafa verið við nám í Bandaríkjunum á síðustu leiktíð.

Hjá ÍA ríkir mikil ánægja með að fá þennan efnilega strák aftur í raðirnar, en hann er uppalinn hjá félaginu og spilaði þar upp alla yngri flokkana. Skagamenn munu halda áfram að treysta á sinn kjarna og er von á frekari fréttum af fleiri uppöldum leikmönnum sem hafa samið við félagið fyrir komandi vetur á næstu dögum.

Fréttir
- Auglýsing -