Íslenska 20 ára og yngri landslið kvenna leikur í dag klukkan 10:00 afar mikilvægan leik gegn Svíþjóð í umspili um 9. til 12. sæti á Evrópumótinu í Alytus í Litháen.
Íslensku stelpurnar máttu þola tap gegn Tyrklandi í 16-liða úrslitunum á miðvikudag, en þrátt fyrir þau vonbrigði er mikið í húfi í dag. Ísland leikur í A-deild mótsins á meðal sterkustu þjóða Evrópu og með sigri gegn Svíum í dag tryggir liðið áframhaldandi veru sína í deild þeirra bestu.
Árangur íslenska liðsins á mótinu til þessa er engu að síður einstaklega eftirtektarverður. Liðinu gekk afar vel í riðlakeppninni og tryggði sér annað sætið í sínum riðli eftir frábæra frammistöðu. Íslensku stelpurnar unnu tvo sterka sigra, fyrst gegn Serbíu og svo gegn Ítalíu, en lutu í lægra haldi gegn Póllandi.
Hægt er að fylgjast með leiknum gegn Svíþjóð í beinni útsendingu á opinberri vefsíðu FIBA.
Hérna er hægt að horfa á leikinn í beinni útsendingu




