HomeBónus deildinBónus deild karlaHvalreki fyrir Álftnesinga

Hvalreki fyrir Álftnesinga

Frank Aron Booker hefur gert tveggja ára samning við Álftanes.

Hann söðlar um eftir farsælt gengi með Valsmönnum undanfarin ár, en Frank býr yfir ríkri reynslu úr háskólaboltanum í Bandaríkjunum, Evrópu og með íslenska landsliðinu.

Á síðustu leiktíð skilaði hann tæpum 14 stigum og 6 fráköstum að meðaltali í leik. Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Álftaness, fagnar komu Franks og segir þennan mikla sigurvegara passa fullkomlega inn í áætlanir liðsins á Álftanesi.

Fréttir
- Auglýsing -