HomeFréttirÞegar við látum finna fyrir okkur, getum við spilað við öll þessi...

Þegar við látum finna fyrir okkur, getum við spilað við öll þessi lið

U-16 ára lið stúlkna lauk keppni á Norðurlandamótinu í Kisakallio í dag með 93-64 tapi gegn ósigruðum meisturum Finna.

Staða liðanna var ráðin fyrir leikinn; Finnar voru þegar búnir að tryggja sér titilinn og Ísland var fast í fjórða sætinu. Árangur íslenska liðsins á mótinu telst engu að síður ágætur þar sem þær skildu bæði Eistland og Svíþjóð eftir að baki sér í töflunni.

Hérna er meira um leikinn

Hákon Hjartarson þjálfari liðsins fór yfir mótið í spjalli við Körfuna eftir leik í Kisakallio.

Fréttir
- Auglýsing -