HomeFréttirValinn í úrvalslið Norðurlanda ,,Vinnan er að skila sér"

Valinn í úrvalslið Norðurlanda ,,Vinnan er að skila sér”

Íslenska U16 landslið drengja í körfubolta lék um bronsverðlaunin gegn Finnum í hreinum úrslitaleik á Norðurlandamótinu í Kisakallio, en Eistland og Danmörk höfðu þegar tryggt sér efstu tvö sætin.

Fyrir leikinn voru bæði lið með tvo sigra og tvö töp. Eftir mikla spennu allt til hinstu sekúndu tryggði Ísland sér þriðja sætið með naumum sigri, 69-71.

Hérna er meira um leikinn

Davíð Antonsson reyndist liðinu gríðarlega mikilvægur í þessum leik og skilaði 10 stigum á töfluna. Flott spilamennska hans á mótinu fór svo sannarlega ekki framhjá neinum, enda var hann valinn í úrvalslið Norðurlandamótsins eftir leikinn.

Fréttir
- Auglýsing -