Íslenska U20 landslið kvenna í körfuknattleik mátti þola tap gegn Tyrklandi í sextán liða úrslitum Evrópumótsins í Litháen. Leiknum lauk með 22 stiga sigri Tyrklands, 84-62, eftir að íslenska liðið hafði byrjað leikinn af miklum krafti.
Ísland leiddi eftir fyrsta leikhluta með tveimur stigum, 21-19, en tyrkneska liðinu tókst að snúa taflinu við í öðrum og þriðja leikhluta þar sem þær skoruðu samtals 57 stig gegn 27 stigum Íslands. Íslensku stelpurnar sýndu þó karakter og unnu fjórða leikhlutann 14-8 en það dugði ekki til að brúa bilið, 84-62.
Rebekka Steingrímsdóttir var stigahæst í íslenska liðinu með 15 stig en hún nýtti vítaskotin sín vel og skoraði úr átta af tíu skotum af línunni. Berglind Hlynsdóttir átti einnig góðan leik og skoraði 14 stig auk þess að taka þrjú fráköst og gefa þrjár stoðsendingar. Sara Logadóttir bætti við níu stigum og Arndís Matthíasdóttir dró vagninn í frákastabaráttunni með því að taka alls þrettán fráköst.
Tyrkneska liðið hafði talsverða yfirburði í teignum og tryggði sér 51 frákast gegn 36 fráköstum Íslands ásamt því að gefa 29 stoðsendingar. Íslenska liðið átti í erfiðleikum með að halda boltanum og tapaði honum 24 sinnum í leiknum.
Næst leikur Ísland gegn Svíþjóð á föstudag í umspili um sæti 9 til 12.
Upptaka af leiknum




