HomeFréttirBandarískur bakvörður í Ólafssal

Bandarískur bakvörður í Ólafssal

Bandaríski bakvörðurinn AC Bryant hefur skrifað undir samning við Hauka og mun leika með liðinu á komandi tímabili. Bryant er 190 cm á hæð og kemur beint úr bandaríska háskólaboltanum þar sem hann lék síðast með Jacksonville State, en áður með Alabama A&M. Á síðasta tímabili skilaði hann 12 stigum og 4 fráköstum að meðaltali í leik, auk þess að vera með 40% nýtingu í þriggja stiga skotum.

Hjá Haukum er mikil ánægja með komu Bryants, sem er lýst sem sterkum og fjölhæfum leikmanni á báðum endum vallarins. Pétur, þjálfari Hauka, segir Bryant passa fullkomlega inn í hugmyndafræði liðsins og telur hann eiga góða möguleika á að verða einn af leiðtogum hópsins í vetur.

Bryant kveðst sjálfur spenntur og þakklátur fyrir tækifærið en þetta er hans fyrsta tímabil sem atvinnumaður í körfubolta og hlakkar hann mikið til að kynnast stuðningsmönnum og landinu.

Fréttir
- Auglýsing -