Ágúst Goði Kjartansson hefur gengið til liðs við þýska félagið Bayer Giants Leverkusen. Hinn 22 ára gamli leikstjórnandi skrifaði undir tveggja ára samning sem gildir til loka tímabilsins 2026/27. Ágúst flytur sig um set eftir eins árs dvöl hjá stórliðinu Bayern Munich.
Leverkusen er sigursælasta körfuboltalið Þýskalands í sögunni, en liðið má muna sinn fífil fegri og leikur nú neðar í deildarkerfinu. Mike Koch, fulltrúi félagsins, lýsir Ágústi sem gáfðum leikstjórnanda með frábæran leikskilning og góðar stoðsendingatölur sem muni stýra spili liðsins á komandi árum. Þá þekki hann þýska boltann vel og hafi látið að sér kveða með yngri landsliðum Íslands.




