Breiðablik hefur gert nýjan fjögurra ára samning við Hrafn Kristjánsson. Hrafn mun áfram stýra meistaraflokki karla ásamt Mikael Mána Hrafnssyni, en tekur samhliða því að sér yfirþjálfun nýstofnaðs liðs Augnabliks í 2. deild. Þá mun hann, ásamt Mikael og Ismael Herrero, halda áfram að samræma þjálfun elstu yngri flokkanna við leikskipulag meistaraflokksins.
Hrafn kveðst himinlifandi með framlenginguna og stoltur af þeirri stefnu sem félagið hefur markað síðustu þrjú ár. Markmiðið með nýja 2. deildar liðinu er að búa til fleiri tækifæri fyrir unga leikmenn og skapa skýrari brú upp í meistaraflokkinn hjá Blikum.




