Undir 16 ára drengjalandslið Íslands í körfuknattleik mátti þola skell gegn Danmörku í fjórða leik sínum á Norðurlandamótinu í Kisakallio í dag, 62-95. Strákarnir mættu skelfilega til leiks á upphafsmínútunum, eins og frídagur gærdagsins hefði gert þá alltof slaka, ólíkt þeirri miklu orku sem einkenndi fyrstu þrjá leiki liðsins á mótinu. Íslenska liðið lenti snemma undir í stöðunni 1-18 þar sem danska liðið gjörsamlega valtaði yfir leikmenn á upphafsmínútunum.
Eftir fyrsta leikhlutann munaði fjórtán stigum á liðunum í stöðunni 15-29, en íslensku strákarnir náðu sér ágætlega á strik í öðrum leikhluta sem þeir unnu 19-16. Þannig tókst þeim að minnka muninn í ellefu stig fyrir hálfleikinn, þar sem staðan var 34-45. Liðið mætti hins vegar aftur alveg hræðilega inn í seinni hálfleikinn og Danir sigldu fljótlega í þægilega forystu með því að vinna þriðja leikhlutann 10-23, svo munurinn var orðinn tuttugu og fjögur stig í stöðunni 44-68. Fjórði leikhlutinn tapaðist svo 18-27 og varð lokamunurinn á liðunum þrjátíu og þrjú stig í 62-95 tapi.
Davíð Antonsson var atkvæðamestur í íslenska liðinu í dag en hann skoraði 20 stig og tók 6 fráköst á rúmum 25 mínútum. Kormákur Jack átti sömuleiðis fínan leik og skilaði 15 stigum ásamt því að taka 5 fráköst. Þá kom Sindri Logason sterkur inn af bekknum með 8 stig og Hlynur Finnsson skilaði sömuleiðis 8 stigum og gaf 4 stoðsendingar á þeim tæpu tuttugu mínútum sem hann spilaði í leiknum.
Heilt yfir spilaði íslenska liðið slappa hraðaupphlaupsvörn, gaf alltof mörg tækifæri varnarlega og leyfði Dönum að taka hvert sóknarfrákastið á fætur öðru. Skotnýtingin var sömuleiðis hræðileg, eða aðeins 13% frá þriggja stiga línunni og 28% heildarnýting, og spilaði liðið með nákvæmlega ekkert sjálfstraust eða trú þegar leið á seinni hálfleikinn. Strákarnir eiga þó lokaleik gegn Finnlandi á morgun þar sem þeir geta með sigri tryggt sér sæti á verðlaunapalli á mótinu.




