HomeBónus deildinBónus deild karlaVegabréfið: Daniel Andreas Mortensen

Vegabréfið: Daniel Andreas Mortensen

Næstur í Vegabréfinu er hinn danski Daniel Mortensen.

Danski landsliðsmaðurinn Daniel Andreas Mortensen hefur skipað sér í hóp allra bestu og áhrifamestu erlendu leikmanna sem hafa leikið á Íslandi á undanförnum árum. Hann hóf meistaraflokksferil sinn í heimalandinu og lék í bandaríska háskólaboltanum áður en hann varð danskur meistari með Bakken Bears árið 2021, en það var sama ár og hann færði sig yfir í íslensku úrvalsdeildina. Hér á landi vakti hann strax gríðarlega athygli með Þór Þorlákshöfn þar sem hann var valinn besti erlendi leikmaður deildarinnar árið 2022 með 18,9 stig og 8,4 fráköst að meðaltali í leik, en þar á meðal var magnaður leikur þar sem hann skoraði heil 47 stig.

Eftir farsælt tímabil með Haukum gekk þessi öflugi leikmaður til liðs við Grindavík þar sem hann hefur leikið stórt hlutverk og fagnaði sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli með liðinu í maí árið 2026. Í heildina hefur hann leikið 161 leik á Íslandi og skilað frábærri heildartölfræði með 15,0 stig, 7,4 fráköst og 3,1 stoðsendingu að meðaltali í leik, auk þess að vera með 19,7 í framlag á þeim tæpu 31 mínútum sem hann spilar að jafnaði. Daniel, sem á að baki 25 landsleiki fyrir hönd Danmerkur, sest hér niður og svarar nokkrum einföldum spurningum fyrir Körfuna.

Hvaðan ertu? Glostrup, rétt fyrir utan Kaupmannahöfn í Danmörku.

Hvað hefur komið þér mest á óvart við að spila á Íslandi? Hversu stóran þátt körfubolti á í menningunni og hversu ástríðufullir stuðningsmennirnir og samfélögin eru. Stemningin á leikjunum er virkilega góð og er ein af ástæðunum fyrir því að ég elska að spila á Íslandi.

Ef þú værir ekki körfuboltamaður, í hvaða annarri íþrótt værir þú að keppa? Handbolta. Mér finnst það skemmtileg íþrótt, hraður leikur, svipaður körfubolta.

Hver er besti leikmaður sem þú hefur spilað með? Kane. Hann er frábær skorari og snjall körfuboltamaður, og svo er hann langbesti varnarmaður sem ég hef spilað með.

Hvert er stærsta augnablikið á ferlinum hingað til? Að vinna meistaratitilinn með Grindavík var mjög sérstakt, sérstaklega eftir allt sem liðið og samfélagið hafði gengið í gegnum síðustu 3 árin. Ég varð fyrir minniháttar meiðslum á versta mögulega tíma, en að horfa á hvernig liðið barðist og að geta lyft bikarnum var ótrúlegt. Það gerði mig bara enn ákveðnari í að koma sterkari til baka núna þegar ég hef jafnað mig.

Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í sögunni? Carmelo Anthony. Ég ólst upp við að horfa á hann og var alltaf mikill aðdáandi hvernig hann spilaði.

Ertu með einhverja hjátrú eða hefðir fyrir leiki? Enga hjátrú, en á leikdögum lyfti ég alltaf á morgnana og reyni að troða inn kríu eftir það.

Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í heiminum? Uppáhaldsstaðurinn minn er þar sem uppáhaldsfólkið mitt er.

Hver er uppáhaldstónlistarmaðurinn þinn? Suspekt. Dönsk hljómsveit frá sama stað og ég.

Hvað borðar þú alltaf fyrir leik? Nánast alltaf einhvers konar pastarétt.

Hvaða önnur áhugamál hefur þú utan íþrótta? Að æfa og elda eða baka.

Hvert er uppáhaldsliðið þitt í NBA? Ég á ekkert uppáhaldslið, mér finnst bara gaman að horfa á góðan körfubolta.

Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn á Íslandi? Fullsetinn íþróttasalur, helst í úrslitakeppninni.

Fréttir
- Auglýsing -