HomeBónus deildinBónus deild karlaTekur slaginn með Sindra í Bónusdeildinni

Tekur slaginn með Sindra í Bónusdeildinni

Magnús Dagur Svansson hefur framlengt samning sinn við körfuknattleiksdeild Sindra og mun leika með liðinu í Bónusdeild karla á komandi tímabili. Magnús, sem gekk til liðs við Sindra frá Ármanni fyrir síðasta tímabili, hefur fest sig rækilega í sessi á Höfn bæði innan vallar sem utan.

Hjá Sindra ríkir mikil ánægja með að halda þessum unga og metnaðarfulla leikmanni sem sýndi miklar framfarir á síðasta vetri. Magnús er þekktur fyrir mikla baráttu og vinnusemi á báðum endum vallarins og er mikilvægur hlekkur í þeim sterka kjarna sem stýrði liðinu upp í efstu deild.

Fréttir
- Auglýsing -