HomeFréttirGríðarlega mikilvægur leikur gegn Ítalíu í dag: Getur tryggt betri stöðu í...

Gríðarlega mikilvægur leikur gegn Ítalíu í dag: Getur tryggt betri stöðu í 16-liða úrslitum

U20 landslið kvenna mætir liði Ítalíu í dag klukkan 17:30 í lokaleik sínum í riðlakeppni Evrópumótsins í Alytus í Litháen.

Öll liðin í riðlinum fara áfram í 16-liða úrslit, en leikurinn í dag er engu að síður gríðarlega mikilvægur fyrir framhaldið. Ísland hefur til þessa unnið einn leik og tapað einum á mótinu og getur með sigri í dag tryggt sér annað sæti riðilsins.

Með því að tryggja sér annað sætið mætir Ísland á pappírnum lakari andstæðingi í 16-liða úrslitunum, sem eykur líkurnar á að komast enn lengra á mótinu. Það er því til mikils að vinna fyrir íslenska liðið í dag og ljóst að stelpurnar munu selja sig dýrt.

Hér fyrir neðan er hægt að horfa á leikinn í beinni útsendingu

Fréttir
- Auglýsing -