HomeÚti í heimiEvrópaÁ leiðinni til Kanarí

Á leiðinni til Kanarí

Landsliðsmaðurinn Jón Axel Guðmundsson hefur skrifað undir eins árs samning við spænska körfuboltaliðið Gran Canaria og mun leika með þeim í næstefstu deild á næsta tímabili.

Þessum 29 ára gamla Grindvíkingi er ætlað stórt hlutverk við að koma liðinu aftur upp í efstu deild, en þar með sameinar hann aftur krafta sína með þjálfaranum Bruno Savignani sem stýrði honum áður með frábærum árangri hjá San Pablo Burgos.

Fréttir
- Auglýsing -