Íslenska 16 ára landslið drengja mætti sterku liði Eistlands í þriðja leik sínum á Norðurlandamótinu.
Leikurinn var jafn og harður framan af. Íslenska liðið var sterkara í fráköstum, en Eistarnir nýttu skotin sín betur sem tryggði þeim sigurinn. Lokatölur urðu 78-84, Eistlandi í vil.
Karfan spjallaði við Baltasar Hlynsson, Atla Haraldsson Katrínarson og Hlyn Finnsson eftir leik í Kisakallio.




