Íslenska 16 ára og yngri landslið stúlkna spilaði í dag sinn þriðja leik á Norðurlandamótinu í Kisakallio í Finnlandi þar sem liðið mætti Eistlandi.
Eftir góðan sigur gegn Svíþjóð í gær mættu stúlkurnar af miklum krafti og héldu uppi sömu góðu orkunni í dag. Lokatölur leiksins urðu hins vegar sex stiga tap Íslands, 59-65, í rosalega kaflaskiptri og spennandi viðureign.
Karfan spjallaði við Kamillu Bergsveinsdóttur, Hildi Kristinsdóttur og Lísbeti Sigfúsdóttur eftir leik í Kisakallio.




