HomeFréttirU20 mætir Póllandi í beinni útsendingu hér kl. 10:00

U20 mætir Póllandi í beinni útsendingu hér kl. 10:00

Undir 20 ára lið kvenna leikur sinn annan leik í A deild EuroBasket í dag kl. 10:00 að íslenskum tíma gegn Póllandi.

Nokkuð óvænt náði íslenska liðið að vinna sterkt lið Serbíu í fyrsta leik sínum í gær og því má búast við hörkuleik gegn annarri sterkri þjóð frá Póllandi í dag.

Leikurinn er annar af þremur í riðil Íslands, en eftir hann eiga þær aðeins eftir að leika gegn Ítalíu komandi þriðjudag 7. júlí.

Hérna er heimasíða mótsins

Hérna er meira um liðið

Hér fyrir neðan verður hægt að horfa á leikinn í beinni útsendingu.

Fréttir
- Auglýsing -