Íslenska 16 ára og yngri landslið stúlkna sýndi frábæra takta á Norðurlandamótinu í Kisakallio í dag þegar liðið knúði fram glæsilegan sigur gegn sterku liði Svíþjóðar.
Frammistaða liðsins í þessum leik var til muna betri og heildstæðari en í leiknum gegn Noregi í gær, enda var greinilegt að stúlkurnar mættu fullar sjálfstrausts.
Karfan spjallaði við Bruno Richotti aðstoðarþjálfara Íslands eftir leik í Kisakallio.




