ÍR hefur samið við Dagnýju Emmu Kristinsdóttur um að leika með meistaraflokki kvenna á komandi keppnistímabili.
Hún er 17 ára bakvörður sem kemur til félagsins frá Vestra, þar sem hún hefur þegar spilað stórt hlutverk í 1. deild kvenna þrátt fyrir ungan aldur og unnið sér inn sæti í æfingahópum yngri landsliða Íslands.
Á síðasta tímabili skilaði hún rúmlega 12 stigum að meðaltali í leik og er henni lýst sem sóknarsinnuðum bakverði sem spilar af mikilli orku, hraða og metnaði. ÍR-ingar bjóða hana hjartanlega velkomna í Breiðholtið og hlakka til að sjá hana spila í hvítu og bláu búningunum í Skógarselinu á komandi tímabili.




