ÍR hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi tímabil í Bónus-deild karla en franski miðherjinn Kevin Amara Kone hefur skrifað undir hjá félaginu.
Kevin er 26 ára og 206 sentímetra leikmaður öllum hnútum kunugur á Íslandi eftir að hafa áður leikið með Stjörnunni, þar sem hann var með tvennu í leik að meðaltali (11 stig og 11 fráköst).
Kevin kemur til ÍR frá Caen Basket Calvados í Frakklandi. Borche Ilievski, þjálfari ÍR, fagnar komu miðherjans og segir hann koma með mikinn styrk í fráköstin, vörnina og teiginn sem muni nýtast nýja liðinu í Breiðholtinu vel á næsta tímabili.




