HomeFréttirEinkunnir úr leik Íslands gegn Ítalíu - Martin bestur í íslenska liðinu

Einkunnir úr leik Íslands gegn Ítalíu – Martin bestur í íslenska liðinu

Ísland tapaði mikilvægum leik gegn Ítalíu í undankeppni HM þrátt fyrir 22 stig frá Martin Hermannssyni. Gæðaútbrot Ítala í miðbiki leiksins gerðu gæfumuninn og fórst tækifærið til að tryggja sætið áfram.

Nú bíður liðsins hreinn úrslitaleikur gegn Bretlandi í Manchester á mánudaginn undir gríðarlegri pressu. Íslenska liðið verður einfaldlega að vinna þann leik til að halda draumnum lifandi.

Hérna er meira um leikinn

Hér fyrir neðan má sjá einkunnir Íslands fyrir leik kvöldsins gegn Ítalíu

Elvar Már Friðriksson – 7

Martin kominn aftur inn og þá situr Elvar ekki einn með bíllyklana. Gerði margt ágætlega þegar hann tók af skarið en virtist örlítið óviss um hvenær hann ætti að gera það. Varnarlega í vandræðum eins og flestir aðrir.

Martin Hermannsson – 8 – Maður leiksins

Byrjaði sérstaklega vel og var upphafið og endirinn á öllum sóknartilburðum Íslands í leiknum. Bestur hjá Íslandi í leiknum, en það var ekki endilega sóknarleikurinn sem var vandamál í dag.

Almar Atlason – 7

Setti fínan þrist fljótlega eftir að hann kom inn á en lítið annað sóknarlega. Gaman að hann sé kominn af alvöru inn í mixið en átti stundum erfitt uppdráttar.

Tryggvi Hlinason – 6

Í villuvandræðum frá upphafi og nokkrar af þeim ansi klunnalegar. Alltof mikilvægur fyrir liðið til þess að sitja svona lengi á bekknum. Öflugur þrátt fyrir að þurfa að passa sig talsvert.

Jón Axel Guðmundsson – 7

Klassískur Jóns Axels leikur. Mikil barátta, ekki allt sem gekk upp en það var ekki vegna þess að hann reyndi ekki.

Kristinn Pálsson – 6

Skilaði sínu ágætlega en fleiri þristar hefðu mátt detta. Aðeins of lítill í framherjastöðuna í þessum leik og Ítalirnir fóru talsvert á hann.

Hilmar Henningsson – 6

Komst aldrei í takt við leikinn. Kom aftur inn þegar leikurinn var farinn.

Þórir Þorbjarnarson – 6

Ekkert sérstaklega mikið að frétta hjá Þóri. Ítalirnir héldu tempóinu í leiknum alveg eins og þeir vildu og Þóri tókst ekki að hlaupa mikið eins og honum finnst gott að gera.

Styrmir Þrastarson – 7

Aðeins meira sjálfstraust í skotunum sem voru þó ekki að detta. Undirrituðum fannst vera ágætis orka í Styrmi sem var samt í vandræðum varnarlega eins og aðrir í liðinu.

Bjarni Guðmann Jónsson – 6

Barátta eins og alltaf. Lítið meira um það að segja.

Fréttir
- Auglýsing -