Norðurlandamótið í körfubolta fyrir leikmenn undir 16 ára fer fram í Kisakallio í Finnlandi og hefst leikur beggja íslensku liðanna á morgun.
Drengirnir og stúlkurnar mæta liðum Noregs í fyrstu leikjum sínum á mótinu.
Áhugasamir geta fylgst náið með gengi og ferðalagi krakkanna í gegnum samfélagsmiðilinn Instagram, en bæði lið munu miðla efni þaðan meðan á mótinu stendur.
Hægt er að fylgjast með liðunum hér





