Stefán Karl Sverrisson hefur gert nýjan samning við körfuknattleiksdeild Selfoss og mun leika með liðinu á komandi tímabili, 2026-2027.
Stefán steig sín fyrstu skref með meistaraflokki félagsins á síðasta vetri. Hann vakti strax verðskuldaða athygli fyrir flotta frammistöðu á vellinum og ríkir mikil ánægja á Selfossi með að halda þessum efnilega leikmanni innan raða liðsins.




