Undir 16 ára lið stúlkna og drengja frá Íslandi eru mætt til Kisakallio í Finnlandi þar sem þau munu næstu vikuna taka þátt í Norðurlandamóti.
Það er skammt stórra högga á milli og er mikil eftirvænting í hópnum, en fyrstu leikir beggja liða fara fram strax á morgun, föstudaginn 3. júlí, þar sem Ísland mætir Noregi. Stelpurnar ríða á vaðið fyrir hádegi og strákarnir fylgja í kjölfarið síðdegis.
Hér fyrir neðan má sjá leikjadagskrána, skipan hópa og upplýsingar um beint vefstreymi.
Leikjadagskrá (á íslenskum tíma)
| Dagsetning | U16 stúlkur | U16 drengir |
| Föstudagur 3. júlí | Noregur vs. Ísland – kl. 11:10 | Noregur vs. Ísland – kl. 16:40 |
| Laugardagur 4. júlí | Svíþjóð vs. Ísland – kl. 13:40 | Svíþjóð vs. Ísland – kl. 16:25 |
| Sunnudagur 5. júlí | Ísland vs. Eistland – kl. 11:10 | Ísland vs. Eistland – kl. 16:40 |
| Þriðjudagur 7. júlí | Ísland vs. Danmörk – kl. 11:10 | Ísland vs. Danmörk – kl. 13:55 |
| Miðvikudagur 8. júlí | Finnland vs. Ísland – kl. 12:10 | Finnland vs. Ísland – kl. 11:55 |
Leikmannahópar Íslands
U16 stúlkur
- Björk Karlsdóttir – Keflavík
- Dagbjört Dóra Kristmannsdóttir – Njarðvík
- Elva Björg Ragnarsdóttir – Keflavík
- Eva Bryndís Ingaóttir – Haukar
- Eva Ingibjörg Óladóttir – Stjarnan
- Heiðrún Lind Sævarsdóttir – Keflavík
- Hildur E. Kristinsdóttir – Haukar
- Kamilla Nótt Bergsveinsdóttir – Keflavík
- Lísbet Lóa Sigfúsdóttir – Keflavík
- Margrét Dúna Guðmundsdóttir – Breiðablik
- Oddný Hulda Einarsdóttir – Keflavík
- Valdís Helga Alexandersdóttir – Snæfell
- Þjálfari: Hákon Hjartarson
- Aðstoðarþjálfarar: Bruno Richotti og Embla Ásgeirsdóttir
U16 drengir
- Arnar Freyr Elvarsson – Keflavík
- Árni Atlason – Breiðablik
- Atli Freyr Haraldsson Katrínarson – Valur
- Baltasar Torfi Hlynsson – Stjarnan
- Davíð Breki Antonsson – Keflavík
- Hlynur Ingi Finnsson – Sindri
- Jón Breki Sigurðarson – Stjarnan
- Kormákur Nói Jack – Stjarnan
- Kristinn Sturluson – Stjarnan
- Sigurður Karl Guðnason – Keflavík
- Sindri Logason – Haukar
- Úlfur Týr Ágústsson – Stjarnan
- Þjálfari: Dino Stipcic
- Aðstoðarþjálfarar: Sigurður Friðrik Gunnarsson og Ögmundur Árni Sveinsson
Beint vefstreymi frá mótinu
Fyrir þá sem vilja hvetja krakkana áfram að heiman er frábært tækifæri til að kaupa aðgang að beinu vefstreymi. Í boði er pakki sem veitir aðgang að öllum leikjum mótsins.
Hérna er hægt að kaupa aðgang að beinu vefstreymi frá mótinu





