Selfoss heldur áfram að tryggja sér krafta sinna manna fyrir komandi tímabilið 2026-2027 í meistaraflokki karla.
Óðinn Freyr Árnason hefur skrifað undir nýjan samning við félagið. Óðinn hefur komið sterkur inn í Selfoss-liðið á síðustu árum og mun áfram vera mikilvægur hlekkur í meistaraflokknum á næstu leiktíð.

Þá hefur Sigurður Darri Magnússon einnig framlengt samning sinn. Sigurður Darri tilheyrir hinum öfluga 2006-árgangi félagsins, sem hefur látið mikið að sér kveða upp yngri flokkana á Selfossi, og eru þetta dýrmæt tíðindi fyrir framtíð liðsins.





