Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik mætir Ítalíu í Laugardalshöll annað kvöld í mikilvægum leik í undankeppni HM 2027. Íslenska liðið vann fyrri leik þessara liða á Ítalíu með 76 stigum gegn 81, og er búist við miklum fjölda áhorfenda í Höllina enda fá áhorfendur hér á landi sjaldan tækifæri til að sjá jafn marga leikmenn úr hæsta gæðaflokki á einu bretti.
Ítalski hópurinn er talsvert breyttur en geysisterkur, og er leikstjórnandinn Niccolò Mannion með NBA-reynslu stærsta nafn liðsins. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og verður í beinni útsendingu á aðalrás RÚV, en miðasala fer fram í gegnum smáforritið Stubb.
Íslenski hópurinn
- Hilmar Smári Henningsson – Stjarnan
- Jón Axel Guðmundsson – Burgos
- Þórir Guðmundur Þorbjarnarson – KR
- Elvar Már Friðriksson – Tenerife
- Almar Orri Atlason – Miami OH
- Kári Jónsson – Valur
- Kristinn Pálsson – Alicante
- Martin Hermannsson – Alba Berlín
- Bragi Guðmundsson – Keflavík
- Tryggvi Snær Hlinason – Bilbao
- Styrmir Snær Þrastarson – Zamora
- Bjarni Guðmann Jónsson – Stjarnan





