HomeFréttirNiccolò Mannion leiðir ítalska liðið gegn Íslandi í Laugardalshöll

Niccolò Mannion leiðir ítalska liðið gegn Íslandi í Laugardalshöll

Íslenska karlalandsliðið mætir í kvöld liði Ítalíu í Laugardalshöll í næstsíðasta leik sínum í fyrri hluta undankeppni HM 2027. Þessi viðureign skiptir máli fyrir stöðu liðsins í riðlinum og gefur íslenska hópnum tækifæri til að reyna sig gegn einum af sterkari andstæðingum Evrópu á heimavelli. Reiknað er með góðri mætingu í Laugardalshöllina enda fá áhorfendur hér á landi sjaldan að sjá jafn marga leikmenn úr hæsta gæðaflokki á einu bretti.

Í fyrri leik þessara liða, sem fram fór á Ítalíu, fór íslenska liðið með sigur af hólmi, 76-81. Í þeim leik reyndust nokkrir ítalskir leikmenn íslensku vörninni erfiðir. Þar á meðal var bakvörðurinn Davide Casarin sem skoraði 19 stig á rúmum 21 mínútu og hitti sérstaklega vel úr tveggja stiga skotum sínum. Jafnframt átti Gabriele Procida góðan leik með 16 stig, auk þess sem miðherjinn og fyrirliðinn Amedeo Tessitori skilaði tveggja stafa tölum í bæði stigum og fráköstum með því að skora 10 stig og taka 10 fráköst.

Ítalski hópurinn sem mætir til leiks í kvöld er talsvert breyttur en þó áfram mjög vel mannaður. Stærsta nafn liðsins að þessu sinni er leikstjórnandinn Niccolò Mannion, sem á að baki reynslu úr NBA-deildinni og hefur leikið með stórliðum á borð við Olimpia Milano í heimalandinu. Hópurinn inniheldur einnig marga aðra sterka leikmenn sem spila í sterkustu deildum Evrópu; má þar nefna áðurnefndan Gabriele Procida sem leikur með Real Madrid á Spáni, Matteo Spagnolo sem spilar með spænska liðinu Baskonia, og Stefano Tonut. Liðið í heild sinni býr yfir mikilli hæð og breidd á öllum stöðum og þarf íslenska liðið að eiga annan frábæran leik ætli þeir sér að ná í annan sigur gegn ítalíu.

Leikurinn er á dagskrá kl. 19:30 og er miðasala í gegnum smáforritið Stubb, en hann verður í beinni útsendingu á aðalrás RÚV.

Hérna er heimasíða mótsins

Fréttir
- Auglýsing -