Einn leikur fer fram á Norðurlandamótinu í Södertalje í dag.
Undir 18 ára kvennalið Íslands hefur gengið vel á mótinu til þessa, en nú í hádeginu mæta þær liði Svíþjóð í lokaleik mótsins. Vinni þær leikinn eru þær í 2. sæti mótsins, en fari svo þær tapi vinna þær til bronsverðlauna á mótinu.
Hérna verður hægt að horfa á leikina í beinu vefstreymi
Leikur dagsins
Norðurlandamót
U18 konur
gegn Svíþjóð kl. 12:30





