Breiðablik hefur gengið frá sínum fyrstu samningum við þær Evu Bryndísi og Gerði Lind. Báðar eru þær uppaldar Blikastúlkur, fæddar árið 2007.
Innan félagsins ríkir mikil ánægja með að sjá unga leikmenn úr eigin yngri flokka starfi taka þetta stóra skref og festa sig enn frekar í sessi í Smáranum, en hlakkað er til að fylgjast með áframhaldandi þróun þeirra á næstunni.





