Haukar hafa tryggt sér krafta bandaríska bakvarðarins Jadakiss Guinn fyrir næsta tímabil. Hin 25 ára og 175 cm háa Jada lék með Hamri/Þór á síðustu leiktíð, þar sem hún var með um 24 stig, 8 fráköst og 6 stoðsendingar að meðaltali í leik.
Hún á að baki öflugan háskólaferil vestanhafs, þar sem hún var meðal annars valin mikilvægasti leikmaður (MVP) úrslitakeppninnar með Chattanooga. Viktor þjálfari fagnar komu hennar og segir hana vera mikinn sigurvegara sem muni styrkja liðið beggja vegna vallarins. Hjá Haukum endurnýjar Jada kynnin við Sigrúnu Björgu Ólafsdóttur, en þær léku saman í háskólaboltanum.





