HomeBónus deildinBónus deild kvennaYfirgefur Bónus deildina

Yfirgefur Bónus deildina

Amandine Toi mun ekki leika með deildarmeisturum Hauka í Bónusdeild kvenna á næsta tímabili. Hún hefur yfirgefið Hafnarfjarðarliðið og gengið til liðs við ítalska félagið Brescia.

Toi átti frábært tímabil með Haukum þar sem hún var í algjöru lykilhlutverki og skilaði glæsilegri tölfræði. Hún skoraði 22 stig að meðaltali í leik, gaf 5 stoðsendingar og tók 3 fráköst. Það er ljóst að þetta er mikill missir fyrir Hauka, en Toi færir sig nú um set í sterka deild á Ítalíu þar sem ný áskorun bíður hennar.

Fréttir
- Auglýsing -