HomeFréttirÍsland á verðlaunapall eftir spennuþrunginn lokaleik gegn Svíþjóð

Ísland á verðlaunapall eftir spennuþrunginn lokaleik gegn Svíþjóð

U18 landslið karla lauk keppni á Norðurlandamótinu í Södertälje með svekkjandi tapi gegn Svíþjóð í lokaleik sínum.

Leiknum lyktaði með sex stiga sigri Svía, 80-74, eftir mikla baráttu í Täljehallen. Með þessum úrslitum tryggði Eistland sér sigurinn á mótinu, Svíar hirtu annað sætið og íslenska liðið endaði í þriðja sæti með bronsverðlaun.

Leikurinn var hnífjafn framan af og íslenska liðið sýndi flotta frammistöðu í fyrri hálfleik. Strákarnir okkar leiddu eftir fyrsta leikhluta, 19-18, og bættu örlítið við forskotið í öðrum leikhluta þar sem þeir skoruðu 19 stig gegn 17 stigum Svía. Staðan í hálfleik var því 38-35 Íslandi í vil.

Ísland hélt forystunni nánast allan þriðja leikhluta þótt Svíar næðu að snúa taflinu við undir lok hans og leiða 55-56 fyrir lokafjórðunginn.

Í fjórða leikhluta reyndust Svíarnir sterkari og sigu fram úr, en þeir unnu lokahlutann 25-18. Tölfræðin sýnir að Svíar unnu frákastastríðið afgerandi, 46 gegn 33, sem vó þungt. Þá nýttu Svíar þriggja stiga skotin sín aðeins betur, eða 28% gegn 22% nýtingu Íslands.

Benóní Andrason átti stórleik fyrir Ísland og var stigahæstur með 24 stig, en hann spilaði tæpar 30 mínútur og nýtti skotin sín frábærlega. Patrik Birmingham kom næstur með 14 stig, en Leó Steinsen og Sturla Böðvarsson skoruðu 10 stig hvor. Þrátt fyrir tapið í dag sýndi liðið flotta takta á mótinu og tekur dýrmæta reynslu og bronsverðlaun með heim.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -