HomeBónus deildinBónus deild kvennaTvær efnilegar áfram á Hlíðarenda

Tvær efnilegar áfram á Hlíðarenda

Valur hefur gengið frá nýjum tveggja ára samningi við þær Bertu Maríu Þorkelsdóttur og Fatimu Rós Joof.

Þær hafa verið í lykilhlutverki í 12. flokki félagsins og tekið miklum framförum undanfarin ár, en jafnframt látið mikið til sín taka í öðrum störfum innan félagsins.

Berta María, sem er fyrirliði U18 landsliðsins á Norðurlandamótinu í Svíþjóð, er öflugur frákastari og þjálfar jafnframt yngstu iðkendur Vals.

Fatima Rós, sem er mikil varnarkló og hlaut Bergsbikarinn í vor fyrir sjálfboðaliðastörf, hefur sömuleiðis verið í kringum yngri landsliðin. Jamil Abiad þjálfari lýsti yfir mikilli ánægju með undirskriftirnar og segir þær báðar leggja gríðarlega hart að sér og verða í stórum hlutverkum á komandi tímabili.

Fréttir
- Auglýsing -