Áfram í Fellabænum

Höttur hefur tryggt sér krafta Salva Guardia til næstu tveggja ára, en hann skrifaði undir samning sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks ásamt því að koma að þjálfun yngri flokka félagsins.

Salva kom til Hattar fyrir tveimur árum og hefur reynst dýrmæt viðbót við allt starf félagsins síðan þá.

Innan raða Hattar ríkir mikil ánægja með að halda Salva og fjölskyldu hans áfram á Egilsstöðum og er horft til þess að þau verði sem lengst hluti af samfélaginu á Austurlandi.

Fréttir
- Auglýsing -