HomeNeðri deildir1. deild kvennaYfirgefur Bolungarvík fyrir Akureyri

Yfirgefur Bolungarvík fyrir Akureyri

Þór Akureyri hefur fengið liðsstyrk fyrir næsta tímabil þar sem bakvörðurinn Bríet María Ásgrímsdóttir hefur gengið til liðs við félagið.

Hún söðlar um eftir að hafa verið í lykilhlutverki hjá Vestra undanfarin ár, en hún mælist 172 sentímetrar á hæð.

Bríet, sem er þekkt fyrir mikla eljusemi og metnað, hlaut þann heiður að vera valin íþróttamanneskja Bolungarvíkur árið 2025. Hjá Þór ríkir mikil ánægja með félagaskiptin og er þess vænst að hún falli fullkomlega inn í þá liðsheild sem verið er að byggja upp fyrir veturinn.

Fréttir
- Auglýsing -