HomeNeðri deildir1. deild kvennaLék áður handbolta með félaginu og er nú komin í körfuboltaliðið

Lék áður handbolta með félaginu og er nú komin í körfuboltaliðið

Aníta Kristín Jónsdóttir hefur gengið til liðs við Val, en hún þekkir vel til aðstæðna á Hlíðarenda eftir að hafa æft handbolta með félaginu á yngri árum.

Hún kemur til Vals frá ÍR þar sem hún sýndi miklar framfarir á síðasta tímabili og var valin bæði besti ungi leikmaðurinn og sú sem bætti sig mest. Aníta kveðst spennt fyrir nýja kaflanum og hlakkar til að þróast frekar sem leikmaður.

Jamil Abiad, þjálfari Vals, fagnar komu hennar og segist hafa hrifist strax af vinnusemi og metnaði Anítu þegar hann kynntist henni á einstaklingsæfingum.

Fréttir
- Auglýsing -