HomeNeðri deildir1. deild karlaEmil áfram og Halldór snýr heim

Emil áfram og Halldór snýr heim

Þór Þorlákshöfn hefur framlengt samninginn við fyrirliða sinn, Emil Karel Einarsson, fyrir komandi tímabil.

Þá snýr heimamaðurinn Halldór Garðar Hermannsson aftur í raðir félagsins frá Keflavík, sem eru mikil gleðitíðindi fyrir klúbbinn.

Halldór og Emil unnu titilinn með Þór 2021

Ljóst er að mikill hugur er í Þórsurum eftir að liðið féll úr Bónusdeildinni á síðustu leiktíð. Með þessum stóru undirskriftum sendir liðið skýr skilaboð um að stefnan sé sett rakleiðis aftur upp í efstu deild.

Fréttir
- Auglýsing -