HomeBónus deildinBónus deild karlaFyrrum leikmaður Galatasaray og Zalgiris í Síkið

Fyrrum leikmaður Galatasaray og Zalgiris í Síkið

Tindastóll hefur gert samkomulag við hinn gríðarlega reynslumikla bandarísk-búlgarska leikstjórnanda Dee Bost um að leika með liðinu á komandi tímabili.

Bost mætir á Krókinn með afar glæsilegan feril að baki, en hann hefur leikið með mörgum af stærstu liðum Evrópu á borð við AS Monaco, Galatasaray, Žalgiris og ASVEL, og spilað í keppnum á borð við EuroLeague og EuroCup. Hann hefur einnig verið lykilmaður í búlgarska landsliðinu og landað meistaratitlum í nokkrum af sterkustu deildum álfunnar.

Dagur Þór Baldvinsson, formaður körfuknattleiksdeildarinnar, og Arnar Guðjónsson þjálfari fagna komu Bost og segja reynslu hans, sigurhugarfar og leiðtogahæfileika eiga eftir að styrkja liðið mikið og sýna metnað félagsins. Bost sjálfur segist spenntur fyrir því að mæta í Síkið, en hann hafi heyrt frábæra hluti um stuðningsmennina og klúbbinn og hlakki til að leggja sitt af mörkum fyrir stólana.

Fréttir
- Auglýsing -