HomeFréttirTap gegn Eistlandi í fyrsta leik á Norðurlandamótinu

Tap gegn Eistlandi í fyrsta leik á Norðurlandamótinu

Íslenska undir 18 ára landslið karla hóf leik á Norðurlandamótinu í Södertälje í Svíþjóð með tapi gegn sterku liði Eistlands, þar sem lokatölur urðu 77-94.

Eistar tóku frumkvæðið strax í fyrri hálfleik og leiddu með átta stiga mun eftir fyrsta leikhluta, 19-23, og jóku forskotið jafnt og þétt fyrir hlé. Íslenska liðið sýndi flotta takta í þriðja leikhluta sem lauk 19-19, en frákastabaráttan og góð skotnýting Eistlands inni í teig reyndist erfið viðureignar. Alls skoruðu Eistar 60 stig í teignum gegn 36 stigum Íslands, auk þess sem bekkurinn hjá Eistlandi reyndist feikisterkur og skilaði 48 stigum.

Leó Steinsson átti stórleik í íslenska liðinu og var stigahæstur með 19 stig, þar sem hann hitti meðal annars úr fimm af sex þriggja stiga skotum sínum. Benóní Andrason fylgdi fast á eftir með 15 stig og Patrik Birmingham skilaði 11 stigum ásamt því að stela fjórum boltum. Jakob Leifsson átti einnig fínan leik og gaf sjö stoðsendingar auk þess að taka átta fráköst. Strákarnir fá fljótt tækifæri til að rífa sig upp því næsti leikur liðsins er strax á morgun, miðvikudag, þegar þeir mæta Dönum klukkan 14:45.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -