Aleksandar Pantelic hefur samið við Hött á Egilsstöðum fyrir komandi tímabil.
Pantelic lék á síðasta tímabili (2025–2026) með liðinu Mladost í Bosníu. Þar átti hann flott tímabil og skilaði 17,3 stigum, 5,7 fráköstum og 1,5 stoðsendingum að meðaltali í leik. Er þetta öflugur liðsstyrkur fyrir Austfirðinga fyrir átökin í efstu deild.




