Hekla Eik Nökkvadóttir hefur skrifað undir samning við Grindavík og mun leika með liðinu á komandi tímabili.
Hekla snýr nú aftur til síns uppeldisfélags eftir dvöl í Bandaríkjunum þar sem hún hefur sameinað nám og körfubolta. Hekla hefur verið stór hluti af félaginu frá unga aldri og ríkir mikil ánægja með að fá hana aftur heim í gulu og bláu treyjuna.




