Íslenska körfuboltaliðið á vegum Special Olympics Íslands hefur lokið keppni á hinu virta 3×3 FIBA OPEN (basket unified) móti sem fram fór í Sviss dagana 20.–21. júní. Þetta var í fyrsta sinn sem Ísland á fulltrúa á mótinu, en alls tóku 15 þjóðir þátt. Íslensku strákarnir stóðu sig frábærlega og vakti frammistaða þeirra verðskuldaða athygli, ekki síst fyrir þær sakir að liðið var það yngsta á öllu mótinu.
Körfubolti er ný grein innan samtakanna hér á landi og er þessi þátttaka sögð opna dyr fyrir fjölmörg spennandi tækifæri og frekari mótaþátttöku erlendis í framtíðinni. Special Olympics Ísland notar tækifærið og sendir Haukum sérstakar hamingjuóskir með flott starf og frábært lið.
Krefjandi aðstæður og nýjar reglur
Keppt var samkvæmt svokölluðu „Unified“ fyrirkomulagi, en það lýsir sér þannig að þrír Special Olympics leikmenn og tveir meðspilarar skipa hvert lið.
Að sögn Báru Fanneyjar Hálfdánardóttur, yfirþjálfara Hauka Special Olympics, hafði hópurinn æft af miklum metnaði og lagt á sig aukalegar æfingar í nokkra mánuði í aðdraganda mótsins. Hún bendir á í tilkynningu KKÍ að reglurnar hafi verið nýjar fyrir hópnum og að leikurinn sé bæði ótrúlega hraður og skemmtilegur.
Aðstæður í Sviss voru krefjandi, en spilað var utandyra í um 30 stiga hita. Þrátt fyrir það sýndu leikmennirnir mikið keppnisskap og stóðu sig afbragðs vel.
Íslenska liðið var skipað eftirtöldum leikmönnum og þjálfurum.
Leikmenn: Anton Evert Hjartarson, Edvard Þór Ingvarsson, Jónas Bjartur Þorsteinsson, Alexander Stefánsson og Bjarki Logason.
Þjálfarar: Everage Richardson og Stella Hrund Ásbjarnardóttir.
María Tinna Árnadóttir fylgdi hópnum eftir og tók myndir af mótinu.




