Keflvíkingurinn Frosti Sigurðarson hefur framlengt samning sinn við félagið til næstu tveggja ára.
Frosti er alinn upp hjá Keflavík og hefur um árabil verið mikilvægur hlekkur innan félagsins. Hann hefur vakið athygli fyrir mikinn metnað og fagmennsku, jafnt innan vallar sem utan, og ríkir mikil ánægja innan herbúða Keflvíkinga með að hafa tryggt krafta hans áfram í bláu treyjunni.




