Spænski bakvörðurinn Jose Medina er að snúa aftur heim í Hveragerði og mun leika með meistaraflokki karla hjá Hamri í 1. deildinni á komandi tímabili. Auk þess að spila með liðinu mun hann einnig koma að þjálfun yngri flokka hjá félaginu.
Hallgrímur Brynjarsson, þjálfari Hamars, fagnar endurkomu Medina og segir hans reynslu og gæði eiga eftir að styrkja ungt og efnilegt lið Hamarsmanna mikið. Sjálfur kveðst Medina í skýjunum með að vera kominn aftur í bláu og hvítu treyjuna, en hann er spenntur fyrir þeirri stefnu klúbbsins að treysta á og byggja upp unga, uppalda leikmenn.




