HomeFréttirStjarnan Íslandsmeistarar í 10. flokki stúlkna

Stjarnan Íslandsmeistarar í 10. flokki stúlkna

Stjarnan urðu á dögunum Íslandsmeistarar í 10. flokki stúlkna eftir sigur á Keflavík í úrslitaeinvíginu. Stjarnan vann fyrsta leikinn í Blue-höllinni og tryggði sér svo titilinn á heimavelli í Ásgarði með öruggum 89-49 sigri í öðrum leiknum. Þjálfarar liðsins eru Hörður Unnsteinsson og Eva Wium Elíasdóttir.

Hér fyrir ofan má sjá mynd af sigurliðinu eftir að titillinn var í höfn. Berglind Katla Hlynsdóttir var valin verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hún skilaði glæsilegri tölfræði og var að meðaltali með 39 stig, 12,7 fráköst og 9,3 stoðsendingar í leikjunum.

Við óskum Stjörnunni innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur!

Mynd / KKÍ

Fréttir
- Auglýsing -