Landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson og samherjar hans í Alba Berlín þurftu að lúta í lægra haldi fyrir Bayern München, 91:83, þegar liðin mættust í þriðja sinn í úrslitum um þýska meistaratitilinn í körfuknattleik. Með sigrinum hefur Bayern náð 2:1 forystu í einvíginu en þrjá sigra þarf til að hampa titlinum, og mætast liðin næst í Berlín á föstudaginn.
Martin spilaði stórt hlutverk í leiknum og skilaði níu stigum, tveimur fráköstum auk þess að gefa þrjár stoðsendingar á samherja sína í liði Alba Berlín.




