HomeBónus deildinBónus deild karlaSæmdur Fálkaorðunni á þjóðhátíðardaginn

Sæmdur Fálkaorðunni á þjóðhátíðardaginn

Ólafur Ólafsson, fyrirliði körfuknattleiksliðs Grindavíkur, var í dag heiðraður með Fálkaorðunni.

Ólafur hlýtur þessa virtu viðurkenningu fyrir forystuhlutverk sitt og vinnu í þágu heimabyggðar sinnar á þeim krefjandi tímum sem samfélagið í Grindavík hefur gengið í gegnum.

Í tilkynningu frá Grindavík er Ólafi lýst sem miklum leiðtoga bæði innan sem utan vallar til fjölda ára, sem hafi verið yngri kynslóðum mikil fyrirmynd og staðið þétt við bakið á sínu fólki þegar mest á reyndi. Forráðamenn og stuðningsmenn Grindavíkur lýsa yfir gríðarlegu stolti með sinn mann og óska honum innilega til hamingju með þennan verðskulduðan heiður.

Fréttir
- Auglýsing -