Íslandsmeistarar Njarðvíkur hafa fengið góðan liðsstyrk fyrir næsta tímabilið í körfuknattleik þar sem landsliðskonan Ásta Júlía Grímsdóttir og Emma Theodórsdóttir hafa skrifað undir hjá félaginu. Ásta Júlía greindi frá því fyrr í dag að hún væri að kveðja Val eftir níu farsæl ár hjá Hlíðarendafélaginu, og er nú ljóst að hún mun klæðast græna búningnum á næstu leiktíð. Um er að ræða tvo ólíka en sterka leikmenn sem eiga eftir að láta til sín taka í Njarðvík.
Emma Theodórsson mun sömuleiðis styrkja Íslandsmeistarana, en hún er að fara að leika á Íslandi í fyrsta skipti á ferlinum. Emma ólst upp í Bandaríkjunum og hefur leikið þar allan sinn feril, nú síðast í bandaríska háskólaboltanum með George Washington. Hún þekkir þó til íslenska körfuboltans þar sem hún á að baki leiki með yngri landsliðum Íslands.




